Ylur æfir gleiðstöðu. Hér eru ýmsar íþróttir reyndar. Þetta er sú nýjasta og í þessari íþrótt getur hann gersigrað kallinn https://youtu.be/oZU08XXcaGs
Undanfarið lékum við feðgarnir lausum hala á föstudagseftirmiðdögum meðan Hui-Ling fór á ljósmyndanámskeið. Hér eru nokkrar myndir sem hún tók þar 28. apríl í gömlum þorpskjarna nærri 101-Taipei (101 hæð í húsinu). Eins og margar stórborgir óx Taipei saman úr mörgum þorpum
Mæðginin skreppa til TaiChung og hitta heilbrigðisstarfsfólk. Ekki spillti fyrir að þau fóru í alla lestaflóruna, háhraðalest, neðanjarðarlest, borgarlest og hægfara lest
Spilað og dansað. Það er heppilegt að geta gert margt samtímis, þó svo að það fái kallinn af og til að sundla.., og ef til vill fleiri https://youtu.be/8KpZDRw-y2o
Á fjömenningarhátíð 日新國小-grunnskóla í Taipei á Taiwan. Ylur var hugfanginn af sönginum og dansinum. Undanfarna daga hefur hann notað flest tól heima sem trommukjuða á kassa, borð og dósir. Í dag lærði hann að dansarar lyfta oft höndum yfir höfuð.