Mamma virti fyrir sér vetrargóðviðrið á kínverska gamársdeginum, á
morgun hefst ár hundsins.
Get link
Facebook
Twitter
Pinterest
Email
Other Apps
Mamma virti fyrir sér vetrargóðviðrið á kínverska gamársdeginum, á morgun hefst ár hundsins. Gleðilegt nýtt ár! Happy new year! Bonan novan jaron! 新年快樂!
Við höfum notað kóftímann til að læra að hjóla. Fyrst tókum við hjálpardekkin af litla hjólinu og létum Yl hjóla þannig í þrjá daga. Við sleppum alveg því sem hann sagði í upphafi, en snemma í ferlinu tók stoltið yfir. Síðan færðum við Yl á stærra hjól og þannig hljóp ég á eftir honum í nokkra daga. Síðan samdi ég við hann um hjólaleið sem ég mætti hjóla með honum og hann myndi eftir bremsunni. Hún var vandinn í upphafi því stærra hjólið er með gírskiptingu og handbremsur. Síðan hafa verið farnar lengri ferði á hjólinu upp og niður brekkur og allt gengið vel. Eðlilega á ég ekki margar myndir úr hjólaferðum okkar þar sem ég þori ekki öðru en að fylgjast vel með honum, en hér eru nokkrar. Þetta byrjaði allt í Breiðholtinu efst, til að hafa landið flatt: Síðan höfum við farið um og í kringum Kópavoginn og yfir til Reykjavíkur um hæðir og brekkur
Ylur heilsar hernum, héranum og skoðar nýársskreytingar. Hann er viss um að tennisspaðinn í íþróttabúðinni sé flugnaspaði fyrir stórar flugur. Hann var ekkert hræddur við stóra hermanninn þegar hann hreyfði sig og brosti til hinna. Það er gott að hvíla sig með Gríslu eftir erfiðan dag
Comments
Post a Comment