Húsbyggingar - hreiðurgerð

Þessa dagana getur Ylur ekki komið í sófann án þess að raða upp púðum til að byggja hús. Ég spyr mig stundum hvort þetta sé hreiðurgerð, eða gerð öryggissvæðis:





Svo horfum við annað slagið á krumma í beinni við hreiðurstörf. Ylur bíður eftir ungunum og ég eftir því að hann sjái krumma setja þeim lífsreglurnar.

Comments